Heimur Eðlanna
Eðlingar/Öðlingar
17.04.2009 20:51:56 / disa1337

Soldið dautt?

Hmms...datt í hug að blogga hérna, var ekki viss hvort einhver les þetta. Endilega kommentið ef þið lesið þetta....

Annars er ég bara að skoða blogg svona almennt og drekka kaffi, ekki slæmt.

Yfir og út en ekki undir!
Ásdísin


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 13:33:03 / hanna

Á mánudag...

... byrjar skólinn.

Ég er ekki svo viss um að það verði ágætt.


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.01.2007 01:30:27 / hanna

2006/2007

Eðlurnar óska heiminum öllum farsældar á nýju ári og þakka fyrir gamalt og gott.

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 09:44:21 / hanna

Á mánudag...

... byrjar skólinn.

Það verður ágætt.



» 2 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 11:40:37 / hanna

kvikmyndadómar andskotans

Ó guð.... bíómyndin Pirates of the Caribbean: Dead Man's Chest fær 7.4 á IMDB!
Ég fór á þessa mynd í gær með honum Hrafnkeli og ég verð að segja að þessa einkunn á myndin ekki skilið!
Reyndar þótti mér fyrsta sjóræningjamyndin ekki jafn guðdómleg og svo mörgum öðrum þótt hún hefði svo sem verið fínasta afþreying.
Stærsti gallinn við Dead Man's Chest er tvímælalaust sá að hún er alltof alltof löng, en auk þess finnst mér líka of mikill Disney bragur á henni. Ég man gamla góða tíma þegar myndir voru alltaf 90 mínútur og ef um stórmyndir var að ræða (og aðeins þá) þá voru þær lengri. En fólk verður að greina þarna á milli; ef um stórmynd er að ræða má hún vera lengri en eðlilegt er en þetta gildir ekki í báðar áttir! Langar myndir verða ekki sjálfkrafa stórmyndir.

Svo eru drög að stundatöflum haustsins komnar á síðuna hans Pálma. Þetta kemur svosem þokkalega út fyrir mig nema það að þar sem þeir breyttu öllu stokkakerfinu var ómögulegt að áætla fyrirfram hvernig taflan yrði og því skarast tímarnir mínir í HÍ eitthvað við kennsluna í MR. Ég þarf bara að vera dugleg að hlaupa á milli HÍ og MR... eða ferðast jafnvel á línuskautum! (quote!)

Annars þykir mér ágætt að skólinn fari að byrja fljótlega, en ég er vís til að draga orð mín tilbaka þegar skammtafræðidæmin fara að draga úr mér lífskraftinn.

Já og það var mjög gaman um helgina!

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 18:08:32 / hanna

Þórsmörk

Það var æðislega gaman í Þórsmörk um helgina. Hressandi að ganga í rigningu og roki. Ferðafélögum þakka ég fyrir samvistirnar. Ásdísi þakka ég góðar móttökur.

-Hanna


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 11:45:59 / hanna

Blessað veðrið

Ég hef ákveðið að segja ykkur hvaða lag ég er með á heilanum. Læt fylgja texta með svo þig getið sungið hátt og snjallt fyrir, vinnufélaga, fjölskyldur, maka, vini og venslafólk.

 Piparkökubakaravísur

Þegar piparkökur bakast
kökugerðarmaður tekur
fyrst af öllu steikarpottinn
og eitt kíló margarín.
Bræðið yfir eldi smjörið
er það næsta sem hann gjörir
er að hræra kóló sykurs
saman við það, heillin mín.

Þegar öllu þessu er lokið
takast átta eggjarauður
maður þær og kíló hveitis
hrærir og í potti vel.
Síðan á að setja í þetta
eina litla teskeið pipar
svo er þá að hnoða deigið
og breiða það svo út á fjöl.

Fyndið svona með að fá lög á heilann. Ég er búin að vera með það á heilanum síðan bróðir minn sagði mér að hann væri með það á heilanum. Síðan ræddum við um hversu fyndið það væri að vera með þetta lag á heilanum. Ég er ekki viss um að mörgun finnist það fyndið. Húmor er merkilegt fyribæri. Reynslan hefur sýnt mér að það er margt sem engum finnst fyndið nema mér og bróður mínum. Þannig að oft lendi ég í e-m aðstæðum eða eitthvað verður á vegi mínum sem mér finnst ógeðslega fyndið, en þarf að bíða með að deila því með öðrum þar ég hitti bróður minn og fæ þau viðbrögð sem ég leita eftir. Ef ég deili þessu með röngum aðila fæ ég oftast bara kurteislegt bros, eða jafnvel vandræðalegt og spyrjandi augnaráð blandað við kurteislegt bros.

Annars er ekki gott veður úti og helgarspáin er ekki spennandi. Ég læt það ekki stöðva mig, ég ætla í útilegu og mun leggj' í ann seinni partinn í dag. Og hananú! Ég er meira að segja búin að pakka ofan í bakpoka og er 'good to go´.

Þessa dagana geri ég ekkert spennandi nema vinna og vinna og vinna. Ég ætla nefnilega að taka mér vikufrí núna síðar í júlí og flýja úr bænum! Égg get ekki hugsað mér að missa tekjur heillar viku - enda fátæk námsmær. Þess vegna er ég að vinna mér inn vikufrí sem er 40 klst. Það tekur sinn tíma.

Annars er ég voðalega kát því ég er að fara til Prag og Berlínar í september. Það leit út fyrir um tíma að hún Lára mín (sem býr í Berlín) yrði akkúrat á Íslandi þegar ég er í Berlín. En núna er það komið á hreint að hún verður á sínum stað og getur sýnt okkur borgina sem hún elskar svo heitt.

Svo er ég líka kát yfir því að í gær bættust 3 stórmyndir í DVD safnið mitt góða; Amélie, Hotel Rwanda og Ferðalag keisaramörgæsanna. En þetta eru allt snilldarmyndir sem eiga vel heima í hillu hvers mannsbarns. Verst að ég er svo upptekin þessa dagana að ég get ekki horft á þær... en þær fá að koma með í bústaðinn í vikufríið mitt góða =)

Jæja.. bæ bæ

-Hanna Björg Henrysdóttir flippari.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 22:18:07 / hanna

Are you scared yet?

Hó!

  • Viva la France!
  • Ég er að vinna með Ítala - það er gaman.
  • Á morgun þarf ég að halda fyrirlestur um verkefnið mitt á útlensku, það hef ég ekki gert áður.
  • Grillaður matur er betri en ógrillaður.
  • Boston Legal er minn uppáhaldsþáttur í íslensku sjónvarpi.
  • Óli Margeirs lítur alveg eins út og ljóshært version af gaurnum sem leikur Billy í Melrose Place.
  • Mig langar í sól.
Og þannig er það nú.

 - Hanna kanna pottur og panna.

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 11:51:33 / hanna

Nú er sumar

Já, prófin eru sko löngu búin og allir búnir að gleyma hvað Stigull, skólabækur, sannanir og Féló er! Þetta ætla ég að fullyrða án þess að hiksta, enda er ég flippari.

 

Í kringum mig hef ég séð fólk flykkjast á grunnskóla-endurfundi (a.k.a. reunion) og nú eru endurfundir grunnskólaárgangsins míns að skella á! Ég fékk símhringingu frá stúlku sem var ágætis vinkona mín stóran hluta grunnskólaáranna, en hún og önnur stúlka sem líka var ágætis vinkona hafa nú skipulagt endurfundi. Samtalið þótti mér broslegt. En umrædd stúlka lýsti því yfir að ég YRÐI að koma því hana langaði svo að spjalla við mig og að þetta yrði sko trúnó-kvöld! Loks kvaddi hún mig með orðunum: “Bæ, ástin mín.” Mér þótti þetta fyndið. Hins vegar vantar mig hana Láru mína fyrir þetta reunion, því eins og ég orðaði við litla bróður minn í gær þá er fyrir mig svipað að fara á tíðrædda endurfundi án Láru eins og að fara í bíó án þess að fara í föt. Skrambans Berlín. Annars finnst mér flestir sem ég ræði við hafa fundist leiðinlegt á sínum endurfundum og því tel ég einu lausnina (eða a.m.k. er það ein lausn) að neyta slatta af áfengi á samkomu þessari, enda er áfengi innifalið í verðinu. (Ég ímynda mér líka svona til samanburðar að það sé minna mál að vera nakinn í bíó sé maður undir áhrifum.)

 

En já, nú eru allir í sumarvinnum (nema Heiðar!) og ég verð að segja að ég er vægast sagt sátt við mitt hlutskipti þrátt fyrir að ég hafi valið lægst launuðu vinnuna sem mér var boðið í þetta skiptið  (enda er ég svo göfug – eins og allir vita ;) ) Ég er semsagt að gera rannsóknarverkefni um functional (starfræna) MRI (segulómun) eða fMRI fyrir heilbrigðistæknisvið LSH. Þetta er tækni sem ekki er byrjað að nota á Íslandi en snýst um að mæla hvaða svæði heilans virkjast við ýmiskonar áreiti. (Þið sáuð kannski þáttinn á Stöð 1 í gær, mánudag). Byggist á því að þér er stungið inn í risastóran og sterkan segul og á þig er skotið útvarpsbylgjupúlsum. Síðan hefur súrefnisríkt blóð aðra seguleiginleika en súrefnissnautt blóð (súrefnisríkt er diamagnetískt en súrefnissnautt er paramagnetískt) og þannig er að hægt að mynda hvert súrefnisríka blóðið streymir, þ.e. hvaða svæði örvasti við tiltekið áreiti og þarnfast þar af leiðandi næringar. En nóg um það :)

 

Ég held að ég láti þetta blaður nægja í bili.

 

- Hanna

p.s. fór e-r í þessa Stiguls-útilegu?


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 20:11:37 / disa1337

Fór í féló eftir...

...prófið í dag (Jarðfræði - gekk vel :)). Ætlað að 'fagna' prófloki í næstsíðasta prófinu mínu með því að fá mér kaffibolla. Ég var búin að gleyma því að fólk væri actually að klára sitt síðasta próf í dag...

Svo labba ég inn í Féló (óskilgreinda mengið, þið munið)...

...þar situr fólk (eða í raun bara strákar) og fagna því að þeir séu búnir í prófum! Kláruðu Grannfræði á sama tíma og ég kláraði mitt næstsíðastapróf. Þeir voru ekki að fá sér góóðan kaffibolla í tilefni af því, neiiiiii - þeir voru að drekka ííííííískaldan góðan Thule! Í gleri...í gleri! Ég ætlaði að deyja. Er ég haldin sjálfspíningarhvöt? Svo hékk ég þarna inni í alveg hálftíma, hálftími í Hadesarheimum 8|

Burtséð frá því...

Einkunnir komnar úr Stærðfræðigreiningu IV B og Rafsegulfræðinni. Ég sjálf er ekkert alltof sátt við einkunnir, ætla í sumarprúf í Rafsó - greiningin var þó skárri :)

Ég bíð mánudagsins 15.maí í ofvæni 8)
Þangað til ætla ég að vera rosalega vermin (nýyrði fyrir þetta 'kúl' - svalur) og læra varmafræði!

Út og yfir
en ekki undir
Ásdís

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 00:22:19 / disa1337

Bloggið hennar Hönnu?

Hélstu það? Nei sko sannarlega ekki! Hanna er bara sú manneskja sem hefur verið hvað duglegust við að blogga :D Núna er komið að mér! :haha:

Rafsegulfræðin góða er á morgun. Ég hefði átt að vera búin að læra miklu meira! Hanna fór heim einhvern tíman áðan...

Þrjár hnátur kíktu í Laugardalslaugina í dag. Hulda, Hanna og Ásdís (öfug stafrófsröð eins og glöggir menn og konur tóku eftir). Það er nú kannski ekki beint hæg að kalla þetta sundferð. Við fórum í heitasta pottinn í svona þrjá mínútur og fundum okkur svo sinn bekkinn hver til þess að liggja á. Ekki var meira um sundið (fyrir utan að Hanna stökk út í laugina í nokkrar sekúndur). Ég sofnaði þessum líka góða blundi. Endilega takið eftir hvað við erum allar orðnar brúnar eftir þessa sundferð... ;)

7 og hálfur dagur í próflok! Svo verður tekið á því 15...fluga sagði mér að Ólöf á 1.ári ætlaði að halda eitthvað. Verður grill? Eða bara plein fyllerí? :D Farin að hlakka til...

Ætli maður læri ekki aðeins og fari svo að soofa.

Gónó mófó! :P

Dísan


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 19:57:46 / hanna

Halló?!

Halló... halló...halló... [Illa heppnuð tilraun til að tákna bergmál]

Ég hélt að þetta væri eðlublogg, er ég kannski eina stelpan í stærð-/eðlisfræði í Háskóla Íslands? Ekki síðast þegar ég gáði!

Próflestur er engin afsökun btw!

Ég skal þá bara tjá mig:

Niðurtalningar Hönnu:

  • 8 dagar í próflok
  • 1 ár og 8 dagar í BS gráðuna mína
  • 5 dagar í orlofsgreiðslur
  • 12 dagar í utanlandsferð

Ég er nú bara búin með eitt próf enn sem komið er og það gekk ekki nógu vel og ég sem ætlaði að rústa því enda gefur námsefnið tilefni til þess (Töluleg greining). Einhverra hluta vegna sá déskotans kennarinn ástæðu til að hafa alltof langt próf. Fáránlegt að hafa próf sem byggir á því að reikna geðveikt hratt e-r ítrekanir í höndunum! Sérstaklega þar sem boðskapur vetrarins var að það væru kjánar sem reiknuðu í höndunum en gerðu ekki smá forritsbút í Matlab til að framkvæma reikningana. Kjánaskapur. En ég virðist nú ekki vera sú eina sem hefur þessa sögu að segja svo ég veit ekki hvernig þetta fer. Pæling að taka sumarpróf... held það barasta!

Á morgun er næsta próf (Stærðfræðigreining 4) og á mánudag er Rafsegulfræði 1. Nokkrum dögum seinna (13. maí) er svo síðasta prófið mitt; Eðlisfræði 4 sem er án efa skemmtilegasta efnið (held samt að ég eigi mér fáa fylgismenn í þeim efnum). Prófið verður nú samt líklega einhverskonar drullumall.

Jáhh.... 8 dagar í eintóma sælu :P

Ég ætla að skemmta mér stórvel 13. maí. Er búin að bjóða henni Láru vinkonu minni í mat (stefni á að gera hið heimsfræga Hönnu-Lasagnette) sem mun smá saman þróast í drykkju og partílæti ... og hver veit nema ég hleypi fleira fólki inn í húsið síðar um kvöldið ;) (Verður það Skaupið '90 núna? eða Bíódagar?)

Jæja... ætli ég skondrist ekki aftur inn á bókasafn núna :)

Hanna Fourier


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 17:39:59 / hanna

Tilkynnist...

Sæl börnin góð,

Á morgun skal slett úr klaufunum áður en próflestur hefst. Það verður gaman. Allavega hjá mér :)

... Annars eru 33 dagar þar til ég lík prófum. Það er nú ekki mikið :)

- Hanna (sem kann allt um segulómun)

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 20:46:47 / h-dóra

Hanna er núna aum í tönnunum

Þessi færsla er í boði Andreasar.

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 03:12:24 / hanna

Ágætt bara!

Hanna er aum í táslunum.

Ágætis árshátíð; ágætis fyrirpartý, ágætis matur (en heldur tímafrekt ferli), ágætis Hermigervill, ágætis dans&dill og ágætis söngur með Landlæknisembættinu.


... Samt er alveg ótrúlega gott að koma heim og skríða upp í rúm!




» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4